fbpx

Það tekur 21 dag að skapa nýja venju

Sportpakki

kr.6.890

 

Fyrir meira úthald og endurheimt.

Sportpakkinn inniheldur:

Túrmerik sterkt

Astaxanthin

Rauðrófur

ICERHERBS teymið hefur sett saman bætiefnapakka sem hentar íþróttafólki sérstaklega vel.

Túrmerik sterkt er frábær blanda sem inniheldur túrmerik, svartan pipar og íslensk fjallagrös. Túrmerik hefur verið þekkt í þúsundir ára fyrir eiginleika sína sem bólgueyðandi jurt. Túrmerik hefur góð áhrif á liði og bólgur og er jafnvel notað við kvillum tengdum gigtarsjúkdómum. Svartur pipar eykur upptöku túrmeriks í líkamanum og margfaldar hann því áhrif túrmeriksins í líkamanum.

Astaxanthin er öflugt andoxunarefni sem getur minnkað bólgur, bætt þrek og endurheimt eftir hreyfingu og æfingar. Vegna þessara eiginleika getur Astaxanthin stuðlað að auknum árangri og verið afar vinsælt hjá íþróttafólki. Varan inniheldur íslenskt astaxanthin með viðbættu e-vítamíni.

Rauðrófur eru frábær ofurfæða sem er þekkt fyrir að bæta súrefnisupptöku og auka blóðflæðið. Með auknu blóðflæði eykst snerpa, orka og úthald. Rauðrófur sem bætiefni er því afar gott fyrir íþróttafólk og fólk sem stunda almennt reglulega hreyfingu.

Innihaldslýsing og notkun

Sportpakki inniheldur:

Túrmerik sterkt

Astaxanthin

Rauðrófur

Pakkinn hentar þeim sem stunda reglulega hreyfingu og vilja auka úthald og styðja við endurheimt.

 

Notkun:

Takið 1-3 hylki á dag af hverri vöru með vatni (sjá notkunarleiðbeiningar á hverri vöru fyrir sig).

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn ná ekki til.

Umsagnir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir eins og er.

Eigðu frumkvæði að fyrstu umsögninni um “Sportpakki”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *