fbpx

Það tekur 21 dag að skapa nýja venju

ANDOXUN – KRÆKIBER & RAUÐRÓFUR

kr.2.199

 

VATNSLOSANDI & JÁRNRÍK OFURBLANDA

Andoxun er sannkölluð ofurfæðublanda. Hún inniheldur íslensk krækiber og rauðrófur. Blandan er einstaklega járnrík og hefur hátt hlutfall af andoxunarefnum. Hún er frábær fyrir meltinguna og bætir súrefnisupptöku.

Krækiber eru þekkt fyrir vatnslosandi áhrif og eru rík af E og C vítamínum, þau hafa mjög hátt innihald andoxunarefna, eins og flavonol og anthocyanin. Neysla krækiberja er talin hafa jákvæð áhrif á taugakerfið, heilastarfssemi og sjón.  Rauðrófur eru þekktar fyrir að bæta súrefnisupptöku og auka blóðflæði og hafa því slegið í gegn meðal íþróttafólks þar sem með auknu blóðflæði eykst snerpa, orka og úthald.  Rauðrófurnar eru einstaklega næringaríkar. Þær innihalda C vítamín, kalíum og önnur nauðsynleg steinefni sem styrkja ónæmiskerfið. Þær styðja einnig við afeitrunarferli lifrar og eru einstaklega járnríkar.

Innihaldslýsing og notkun

Varan inniheldur 60 hylki.

Hvert hylki inniheldur: 

  • Krækiber, 380 mg.
  • Rauðrófuduft 100 mg.
  • Engin aukaefni
  • Hylkin eru úr jurtabeðmi (vegan)

Notkun:
Takið 2 hylki á dag með vatni.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.  Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn ná ekki til.

Umsagnir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir eins og er.

Eigðu frumkvæði að fyrstu umsögninni um “ANDOXUN – KRÆKIBER & RAUÐRÓFUR”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *