Daglegi pakkinn - B-12, D-vítamín & C-vítamín - kr. 5390

Það tekur 21 dag að skapa nýja venju

Tilboð

Daglegi pakkinn

Original price was: kr.5.390.Current price is: kr.4.312.

 

Daglegi pakkinn inniheldur þrjú mikilvæg vítamín tryggir daglega inntöku þeirra.

Daglegi pakkinn inniheldur:

B12 með fólinsýru & hveitigrasi
C-vítamín & Engifer
D-vítamín orkublöndu.

Þessi tilboðspakki hentar þeim sem vita ekki alveg hvaða vítamín á að taka daglega, en vilja tryggja inntöku mikilvægra næringarefna.

B12  er öflug blanda með fólinsýru (b6-vítamíni) og  hreinu hveitigrasi. B-12 styður við starfsemi taugakerfis og dregur úr þreytu og lúa. Fólinsýra (b9-vítamín) stuðlar að eðlilegri orkuvinnslu og styður við tauga-, hjarta- og æðakerfið. Hveitigras setur punktinn yfir i-ið í þessari blöndu. Hveitigras er ofurfæða sem er ríkt af steinefnum, vítamínum og andoxunarefnum og hjálpar líkamanum að byggja sig upp og hreinsa.

C-vítamín og engifer er náttúrulegur flensubani  og öflug blanda sem styður við ónæmiskerfið. C-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og myndun kollagens fyrir viðhald brjósks og beina. Engifer hefur lengi verið þekkt sem virk lækningarjurt og fyrir áhrif sín á einkenni hálsbólgu og kvefs.

D-vítamín orkublandan er blanda af hámarksskammti af d-vítamíni og íslenskri burnirót. D-vítamín er nauðsynlegt fyrir kalsíum- og fosfat búskap beina og tanna. Burnirót er talin auka einbeitingu, almenna andlega líðan, líkamlegt og andlegt úthald. Þessi blanda er sannkölluð orkublanda.

Innihaldslýsing og notkun
Umsagnir