fbpx

Það tekur 21 dag að skapa nýja venju

COLLAGEN LIÐAMÓT

kr.3.199

 

Öflug blanda fyrir liði

 
Collagen liðamót er öflug blanda fyrir liði og liðamót sem inniheldur íslenskt kollagen úr fiskiroði, túrmerik og magnesíum citrate. Inniheldur einnig pipar og c-vítamín fyrir betri upptöku næringarefna í líkamanum.
 
Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans og styrkir vefi líkamans og sér til þess að þeir haldist sterkir. Kollagen finnst í liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum.
 
Túrmerik hefur náttúrulega bólgueyðandi eiginleika sem rekja má til virka efnisins curcumin og hefur einnig sterk andoxandi áhrif. Túrmerik getur dregið úr bólgum og liðverkjum og hefur jafnvel hjálpað þeim sem glíma við liða-, slit- og þvagsýrugigt.
 
Magnesíum er mikilvægt fyrir starfsemi líkamans og nauðsynlegt fyrir heilbrigði beina, eðlilega vöðvaslökun og heilbrigt taugakerfi. Magnesíum virkar vel gegn svefntruflunum og fótaóeirð og styður vel við stoðkerfið. Magnesíum citrate er það form magnesíums sem líkaminn nær að nýta vel.

Innihaldslýsing og notkun

Varan inniheldur 120 hylki.

Hvert hylki inniheldur: 

  • Collagen peptides 350 mg.
  • Túrmerik 70 mg.
  • Magnesíum citrate 35 mg.
  • C- vítamín 8 mg.
  • Svartur pipar 2 mg.
  • Hylkin eru úr jurtabeðmi

Notkun:
Takið 3 hylki á dag með vatni.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.  Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn ná ekki til.

 

Umsagnir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir eins og er.

Eigðu frumkvæði að fyrstu umsögninni um “COLLAGEN LIÐAMÓT”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *