fbpx

Það tekur 21 dag að skapa nýja venju

ÍSLENSKIR BRJÓSTDROPAR MEÐ FJALLAGRÖSUM

kr.1.890

 

GEGN HÓSTA OG SÆRINDUM Í HÁLSI

 

Fjallagrasa Íslenskir brjóstdropar vinna gegn særindum í hálsi.  Hálsmixtúran inniheldur fjölsykrur sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar.

Fjallagrasa brjóstdropar innihalda mjög hátt hlutfall af fjallagrösum sem tryggir mikla virkni þeirra eins og í öðrum fjallagrasa hálsmixtúrunum. Fjallagrös innihalda leysanlegar trefjar, lichenin, isolichenin og fléttusýrur sem mýkja slímhúð í hálsi.  Auk fjallagrasanna inniheldur mixtúran mentól og lakkrís sem eru þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.

Fjallagrasa íslenskir brjóstdropar innihalda alkóhól og henta því ekki börnum.

Fjallagrasamixtúrnar eru góð vörn gegn hósta og hvers konar óþægindum í hálsi, því mixtúrurnar innihalda fjallagrös sem hafa mýkjandi áhrif á slímhúð í hálsi.

Fyrirtækið Íslensk fjallagrös hf. (Iceherbs) framleiðir heilsumixtúrur úr fjallagrösum og öðrum íslenskum náttúruvörum undir vörumerkinu Natura Islandica. Vörumerkið Natura Islandica vísar til þeirra verðmæta sem felast í hreinleika íslenskrar náttúru.

Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningamáttur þeirra eigi við rök að styðjast.

3 in stock

Innihaldslýsing og notkun

Brjóstdropar með fjallagrösum 200 ml

Innihaldsefni:

Vatn, maltitólsýróp, fjallagrasaþykkni, etanól, salmíak, lakkrískjarni og mentól.

Notkun:
Hristist fyrir notkun.
Fyrir fullorðna 12 ára og eldri:
1 matskeið (10 ml.) 3-5 á dag.

Ekki ætlað börnum.
Hver flaska inniheldur 20 – 30 daga skammt af hóstamixtúru.

Umsagnir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir eins og er.

Eigðu frumkvæði að fyrstu umsögninni um “ÍSLENSKIR BRJÓSTDROPAR MEÐ FJALLAGRÖSUM”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *