fbpx

Hvannarrót: heilbrigð þvagblaðra


Friðrik Guðmundsson vaknaði á hverri nóttu til að pissa þar til hann fór að nota Hvannarrót. Nú sefur hann allar nætur og verður ekkl var við neinn þvagleka. Hvannarrót getur haft góð áhrif á þvagblöðruna og þvagrás og getur hjálpað við aldurstengdum þvagvandamálum. Heilbrigði þvagblaðra með hvannarrót.

Vaknaði á hverri nóttu til þess að pissa

Friðrik Guðmundsson vaknaði á hverri nóttu til að pissa. „Ég var alltaf að vakna og það kom fyrir að ég lenti í smávæginlegum þvagleka. Einhver benti mér á að fara í heilsubúð til að fá eitthvað við þessu og þar var mér bent á Hvannarrót.“ Friðrik var efins fyrst en ákvað samt að prófa og reyndist Hvannarrótin vera lausnin fyrir hann. „Nú sef ég allar nætur og verð aldrei var við neinn þvagleika. Mér fannst breytingin alveg ótrúleg og það tók merkilega stuttan tíma.“ Friðrik segjir að það hafi tekið um viku eða tíu daga fyrir vandamálið að hverfa alveg. „Ég er nú orðinn svolítið gamall og hélt að þetta væri bara aldurinn og hafði spurt lækni um þetta og hann sagði að þetta fylgdi aldrinum. Það hefði örugglega áhrif, en þetta leysti vandann.“

Tekur Hvannarrót á hverjum degi

„Ég nota Hvannarrót enn þá og tek eina töflu á dag, en ekki á neinum ákveðnum tíma.“ Friðrik segjist ekki hafa orðið var við neinar aukaverkanir eða neitt slíkt, ég losnaði bara við vandamálið.“ Friðrik mælir með Hvannarrót fyrir alla sem glíma við þvagvandamál. Hann hafði sjálfur prófað aðrar lausnir sem virkuðu ekki eins vel. „Þetta var eins og kraftaverk,“ segir Friðrik. „Þetta var bylting fyrir mig. Ég vona að þetta geti hjálpað fleirum.“

Hvannarrótin frá ICEHERBS

Hvannarrót er úr íslenskri ætihvönn, sem heitir á latínu Angelica archangelica. Ætihvönn hefur sterkar rætur sem búa yfir miklum krafti og rótin á plöntunni virðist vera virkari og hafa mun meiri örvandi áhrif en aðrir hlutar plöntunnar. Hvannarrótin frá ICEHERBS er þurrkuð og möluð hvannarrót í hylkjum úr jurtabeðmi, sem gerir vöruna 100% náttúrulega.

Ætihvönn er ein þekktasta nytja- og lækningajurtin sem notuð var á Íslandi og víðar í norðurálfu til forna, en hún vex aðallega á norðlægum slóðum eða hátt til fjalla í Evrópu. Allir hlutar plöntunnar hafa verið nýttir í gegnum tíðina en rótin var einna mest notuð til lækninga þar sem styrkleikar hennar hafa alltaf verið vel þekktir.

Jurtin er þekkt fyrir að vinna gegn einkennum ofvirkrar þvagblöðru og getur viðhaldið heilbrigðri þvagblöðru og þvagrás. Sýnt hefur verið fram á að notkun hvannar geti fækkað salernisferðum og þar með haft jákvæð áhrif á svefn og um leið bætt daglegt líf. Áhrif hvannarrótar eru margvísleg og fyrir utan jákvæð áhrif sín á þvagblöðru hefur hún lengi verið notuð við hvers kyns meltingarvandamálum, til að örva meltingu og draga úr uppþembu og lofti í maga. Dagleg inntaka hefur mikil jákvæð áhrif á líðan fólks.

Á seinni árum hafa svo verið gerðar miklar vísindalegar rannsóknir á virkni og efnainnihaldi ætihvannar sem hafa leitt í ljós að sú virkni sem kennd hefur verið við hvönnina í þúsundir ára er sannanleg og að ætihvönnin sé einkar virk og öflug jurt.

Hrein náttúruafurð

Markmið ICEHERBS er að nýta náttúruauðlindir sem tengjast íslenskri hefð og sögu og vinna þær í hreinar neytendavænar vörur fyrir viðskiptavini.

„Við hjá ICEHERBS leggjum áherslu á að framleiða hrein og náttúruleg bætiefni sem byggja á sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og notum engin óþörf fylliefni,“ segir Katrín Amni, framkvæmdastjóri Náttúrusmiðjunnar. „Við viljum að vörurnar okkar nýtist viðskiptavinum okkar, að virkni skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar efnanna viðhaldi sér að fullu.“


Hvannarrótin frá ICEHERBS fæst í öllum apótekum og heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó og Fjarðarkaupum. Sjá nánar á iceherbs.is

Einnig hefur ICEHERBS opnað nýja vefverslun þar sem hægt er að panta bætiefnin. www.iceherbs.is

Grein var fyrst birt í fréttablaðinu

Vörurnar fást í flestum apótekum, heilsuvörurverslunum og betri stórvörumörkuðum.