fbpx

D-vítamín: Orkumikil blanda


Helgi Guðmundsson húsa- smiður byrjaði að taka inn D-vítamín orkublöndu með burnirót frá ICEHERBS fyrir nokkrum árum. Hann segir blönduna gefa sér orku og hafa góð áhrif á sig almennt.

„Ég byrjaði fyrst að taka þetta inn til að halda sjóninni við, en ég er fæddur og uppalinn í sveit og vandist við að borða mikið af krækiberjum sem ég held að hafi stuðlað að því að ég hef alltaf verið með góða sjón. En ég er viss um að D-vítamín orkublandan hafi líka sitt að segja við að styrkja sjónina enda er ég orðinn 81 árs gamall og ekki enn farinn að nota gleraugu,“ segir Helgi.

Bætt orka bætir liðina

Helgi er menntaður húsasmiður og starfaði lengi sem slíkur. „Ég var orðinn nokkuð slæmur í hnjánum á tíma enda var ég starfandi smiður, lá mikið á hnjánum í vinnunni og bólgnaði upp í þeim. Fyrir nokkrum árum kynntist ég bætiefnunum frá ICEHERBS og fannst spennandi að prófa þau. Enda er ég vanur fjallagrösum, bláberjum og krækiberjum frá jurtaríkinu úr sveitinni fyrir vestan og trúi því að það sé rétt að treysta á náttúruna. Þegar ég byrjaði að taka inn D-vítamín blönduna frá ICEHERBS fannst mér hún gera mér gott að ýmsu leiti.

Ég er núna hættur

að vinna en það er þó ekki langt síðan ég var að fikta í þessu að gamni. Það eru kannski um þrjú eða fjögur ár síðan ég var að leggja parket, þó þetta gamall. Ég tel mig nú nokkuð góðan og er viss um að D-vítamín orkublandan hafi haft góð áhrif á liðina en líka orkuna. Meiri orka gerir mér kleift að hreyfa mig reglulega, eða um 3-4 sinnum í viku. Þá fer ég 2-3 í viku í ræktina og geng 1-2 í viku. Það hefur hjálpað til við að minnka bólgurnar í hnjánum og bæta líðanina.

Ég finn að ég er orkumeiri almennt og þetta hefur áhrif á hvort annað, orkan og líðanin. Eftir því sem maður hreyfir sig meira þá eykst orkan. Ég hef líka haldið sjóninni, eða hún hefur alla vega ekki versnað í þessu tíu ár,“ segir Helgi.

Fann fyrir mun

Í desember byrjaði ég strax að leita mér upplýsinga á netinu um fæðubótarefni sem ég gæti tekið inn til „Ég tek D-vítamín orkublönduna allt árið um kring en inntakan er ekki svo stíf að ég taki þetta með mér í hverja helgarferð. En svona flesta daga. Ég fann þó mun á mér, eftir að hafa farið í mánaðarferð norður í land án þess að taka bætiefnið með mér. Ég er ekki frá því að ég hafi verið stirðari eftir á, en það batnaði fljótt aftur eftir að ég byrjaði að taka þetta inn aftur.“

Við fáum einfaldlega ekki nóg

D-vítamín er eitt mikilvægasta vítamínið sem líkaminn þarfnast. Það hjálpar okkur að vinna kalk úr fæðunni til þess að fyrirbyggja kalkskort og hefur jákvæð áhrif á sjónheilsu á ýmsan hátt. Skortur á því getur valdið ýmsum kvillum eins og sársauka í liðum og í verstu tilfellum alvarlegum heilsufarsvandamálum. Í mörgum tilfellum þegar liðvandamál orsakast af D-vítamínskorti má snúa vandanum við með inntöku á D-vítamín bætiefni.

D-vítamín fáum við úr fæðu og úr sólarljósinu en fjöldi rannsókna sýnir fram á að nútímamaðurinn fær ekki nóg af D-vítamíni úr fæðunni. Við sem búum á norðlægum slóðum erum enn verr sett því við fáum líka of lítið af sólarljósi, hvað þá í svartasta skammdeginu. Því er lykilatriði að taka inn D-vítamín sem bætiefni til þess að tryggja nægilegt magn.

Einstök orkublanda

Orkublandan frá ICEHERBS inniheldur 2.000 einingar af D-vítamíni og hreina íslenska burnirót. Orkublandan er sniðin fyrir þá sem glíma við skammdegisslen. ICEHERBS fær mikið af góðum viðbrögðum frá neytendum um hvað varan gerir þeim gott. Flestallir finna mun á sér eftir að hafa tekið Orkublönduna daglega í 5-10 daga, og fólk vaknar mun hressara.

Hið norræna ginseng

Burnirótin er ein magnaðasta lækningajurt sem vex á Íslandi og eitt best geymda leyndarmál jurtaríkisins. Jurtin er oft kölluð hið norræna ginseng en hún er þekkt fyrir einstök áhrif sín á aukna orku, einbeitingu og úthald. Áður fyrr var hún meira að segja notuð til að auka frammistöðu hermanna. Klínískar rannsóknir sýna einnig fram á að hún hjálpar fólki að vinna gegn stressi og álagi. Burnirótin er oft notuð til að vinna gegn orkuleysi, sleni og depurð og þannig vinnur hún vel með D-vítamíninu.

Innihaldsefni sem Orkublandan frá ICEHERBS samanstendur af eru algert dúndur fyrir aukna orku, snerpu og úthald. Í hverju hylki eru 2000 einingar af D-vítamíni sem er viðmiðunargildi fyrir efri mörk daglegrar meðalneyslu á D-vítamíni. Burnirótin í Orkublöndunni er handtínd á Íslandi, þurrkuð, verkuð og mulin. Öll bætiefni ICEHERBS eru framleidd á Blönduósi.

Grein var fyrst birt í Fréttablaðinu.

Vörurnar fást í flestum apótekum, heilsuvörurverslunum og betri stórvörumörkuðum.