kr.1.890
Þessi bragðgóða fjallagrasa krakkamixtúra með appelsínubragði hefur mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Virkni sína sækir mixtúran í fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar.
Fjallagrasa krakkamixtúra með appelsínubragði er án alkóhóls og hentar því börnum frá eins árs aldri, enda höfðar appelsínubragðið vel til barna.
Fyrirtækið Íslensk fjallagrös hf. (Iceherbs) framleiðir heilsumixtúrur úr fjallagrösum og öðrum íslenskum náttúruvörum undir vörumerkinu Natura Islandica. Vörumerkið Natura Islandica vísar til þeirra verðmæta sem felast í hreinleika íslenskrar náttúru.
Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningarmáttur þeirra eigi við rök að styðjast.
3 in stock
Fjallagrasa krakkamixtúra með appelsínubragði200 ml
Innihaldsefni:
Vatn, maltitólsýróp, glúkósasýróp, fjallagrasaþykkni, appelsínuþykkni og pektín.
Notkun:
Hristist fyrir notkun.
Notist 3 – 5 sinnum á dag:
1 teskeið (5 ml) handa börnum eldri en 1 árs.
Hver flaska inniheldur 20 – 30 daga skammt af hóstamixtúru.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir eins og er.