fbpx

Það tekur 21 dag að skapa nýja venju

HÁLSMIXTÚRA HUNANG & PIPARMYNTU

kr.1.890

 

VINNUR GEGN SÆRINDUM Í HÁLSI

 

Fjallagrasa hálsmixtúran með  hunangi & piparmyntu vinnur gegn særindum í hálsi. Hálsmixtúran inniheldur fjölsykrur sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar.

Fjallagrasa hálsmixtúran inniheldur mjög hátt hlutfall af fjallagrösum sem tryggir mikla virkni þeirra eins og í öðrum fjallagrasa hálsmixtúrunum. Fjallagrös innihalda leysanlegar trefjar, lichenin, isolichenin og fléttusýrur sem mýkja slímhúð í hálsi. Auk fjallagrasanna inniheldur mixtúran mentól og lakkrís sem eru þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.
Fjallagrasa hálsmixtúra með hunangi og piparmyntu er án alkóhóls og hentar börnum frá eins árs aldri

Fjallagrasamixtúrnar eru góð vörn gegn hósta og hvers konar óþægindum í hálsi, því mixtúrurnar innihalda fjallagrös sem hafa mýkjandi áhrif á slímhúð í hálsi.
Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningamáttur þeirra eigi við rök að styðjast.

3 in stock

Innihaldslýsing og notkun

Hálsmixtúra fjallagrasa með hunangi & piparmyntu 200 ml

Innihaldsefni:

Maltitól, síróp, vatn, glúkósi, fjallagrasaþykkni (14%), (vatn, fjallagrös (9% af þykkni), rotvarnarefni (E202), bindiefni, (E440), hunangsbragðefni, piparmyntuolía.

Notkun:
Hristist fyrir notkun.
Notist 3 – 5 sinnum á dag:
1 matskeið (10 ml) fyrir fullorðna.
1 teskeið (5 ml) handa börnum eldri en 1 árs.
Hver flaska inniheldur 20 – 30 daga skammt af hóstamixtúru.

Umsagnir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir eins og er.

Eigðu frumkvæði að fyrstu umsögninni um “HÁLSMIXTÚRA HUNANG & PIPARMYNTU”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *