Það tekur 21 dag að skapa nýja venju
kr.1.890
Fjallagrasa hálsmixtúra með lakkrísbragði hefur mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Hálsmixtúran inniheldur fjölsykrur sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar. Auk fjallagrasanna inniheldur mixtúran lakkrís sem er þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.
Fjallagrasa hálsmixtúra með lakkrísbragði er án alkóhóls og hentar börnum frá eins árs aldri. Fjallagrasa mixtúrurnar eru góð vörn gegn hósta og hvers konar óþægindum í hálsi, því þær innihalda fjallagrös sem hafa mýkjandi áhrif á slímhúð í hálsi.
Fjallagrasa hálsmixtúrur höfða til allra en þær eru sérstaklega góðar fyrir þá sem reyna mikið á röddina, t.d. söngvara, ræðumenn og kennara.
Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningarmáttur þeirra eigi við rök að styðjast.
1 in stock
Hálsmixtúra fjallagrasa með lakkrísbragði 200 ml
Innihaldsefni:
Maltitól síróp, glúkósi, vatn, fjallagrasaþykkni (15%) (vatn, fjallagrös (9% af þykkni), rotvarnarefni (E202)), lakkrískjarni, ammoníumklóríð (salmíak), rotvarnarefni (E202), eucalyptus olía
Notkun:
Hristist fyrir notkun.
Notist 3 – 5 sinnum á dag:
1 matskeið (10 ml) fyrir fullorðna.
1 teskeið (5 ml) handa börnum eldri en 1 árs.
Hver flaska inniheldur 20 – 30 daga skammt af hóstamixtúru.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir eins og er.