MELTING - BLANDA ENGIFERS & FJALLAGRASA - ICEHERBS

Það tekur 21 dag að skapa nýja venju

MELTING – BLANDA ENGIFERS & FJALLAGRASA

kr.2.199

 

STYRKIR MELTINGUNA OG GETUR KOMIÐ Í VEG FYRIR UPPÞEMBU

 

Melting er hrein blanda með engifer og íslenskum fjallagrösum en báðar þessar jurtir eru þekktar fyrir jákvæð áhrif sín á meltingarveginn og magavandamál.
 
Engifer inniheldur lífvirk efni sem vinna gegn bólgumyndun. Einnig er engifer talið geta virkað verkjastillandi og hefur verið notað til þess að milda magaverki og meltingartruflanir. Þá er engifer notað til þess að vinna gegn ógleði, hvort sem það á við um morgunógleði eða ferðaveiki. Engifer hefur einnig lengi verið þekkt fyrir aðra eiginleika sína eins og að lina höfuðverki, slá á bólgur og gigtarverki auk þess að lina hálsbólgu, hósta og önnur einkenni kvefs.
 
Fjallagrös eru þekkt fyrir að geta bætt meltingu, styrkt þarmana og jafnvel haft áhrif á þyngdartap. Fjallagrösin innihalda leysanlegar trefjar, Lichenin og Isolichenin, sem geta myndað mýkjandi himnu á slímhúð í maga og dregið úr særindum eða óróleika í maga, bætt meltingu og mýkt hægðir. Þá geta fjallagrös hjálpað til við að draga úr bjúg.

Innihaldslýsing og notkun
Umsagnir
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.