Rólegri kvöld og betri næturhvíld

Rólegri kvöld og betri næturhvíld

Í gegnum árin hef ég oft átt erfitt með að festa svefn eftir langa og erilsama daga. Ég var annaðhvort of þreytt til að sofna eða með verki í fótum og liðum sem héldu mér vakandi. Þar sem ég vil ekki nota svefnlyf eða sambærileg úrræði fór ég að leita að náttúrulegri lausn og ákvað að prófa Sofðu rótt. Ég fann fljótt mun – það varð auðveldara að sofna, ég sofna hraðar og sef nú djúpt og samfleytt.

Ég hef tekið Sofðu rótt í mörg ár og get sagt að það hafi breytt kvöldunum mínum. Rólegri hugur, mýkri lending og betri næturhvíld. Eftir góða kynni mín af vörunni gaf ég móður minni, sem dvelur á hjúkrunarheimili, Sofðu rótt í mixtúruformi. Hún átti það til að vakna oft um nætur en nú festir hún svefn fyrr og sefur lengur. Mixtúran hentar sérstaklega vel þeim sem eiga erfitt með að taka hylki.

Ég er mjög ánægð með innihaldsefnin, magnolíubörkur sem hjálpar til við að róa hugann og íslensk fjallagrös sem styðja almenna vellíðan. Góð næturhvíld skiptir mig öllu máli.



Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.