16 mar Hvað segir einkaþjálfari World Class um magnesíum
„Ég þurfti að horfast í augu við vanlíðanina, taka þetta í mínar eigin hendur, standa upp og hugsa vel um sjálfa mig „
Orka Kristinsdóttir (34) starfar við ástríðu sína sem þjálfari hjá World Class. Hún stundar því mikla og fjölbreytta hreyfingu. Í fyrrasumar gekk Orka í gegnum erfiða lífsreynslu sem varð til þess að hún missti mátt og þrótt og svefninn fór úr skorðum.
„Ég er svo lánsöm að vinna við það sem ég elska en það er að hitta, kenna og þjálfa duglegt og frábært fólk. Enginn dagur er eins og ég hitti mikið af nýju og skemmtilegu fólki á hverjum einasta degi sem gerir vinnudagana svo skemmtilega. Ég hef alltaf verið orkumikil og ber nafn mitt með réttu og er algjört fiðrildi, ég er mjög mikið úti um allt og finn að hreyfing á hverjum degi gerir mikið fyrir mig. Hreyfing er eitt besta eldsneytið fyrir mann til að líða vel á bæði líkama og sál,“ segir Orka sem þess utan nýtur samveru með eiginmanni sínum, vinkonum og fjölskyldu.
Ólík sjálfri sér í kjölfar áfalls
Orka missti móður sína í júní 2023 og glímdi í kjöldarið við kvíða og svefnleysi. Góður svefn er lífsnauðsynlegur og er ein megin undirstaða góðrar líkamlegrar og andlegrar heilsu. Flestir upplifa einhvern tíma á lífsleiðinni svefnvandamál og geta ástæðurnar verið ýmsar.
„Eftir að ég lenti í stærsta áfalli sem ég hef orðið fyrir, fyrir um það bil ári síðan, þá var ég orðin svo ótrúlega ólík sjálfri mér. Upplifði mikinn kvíða, var svefnvana, orku- og úthaldslaus. Ég þjáðist af mikilli þreytu, þróttleysi, minnisleysi með heilaþoku, einbeitingarskorti, höfuðkvillum, vöðvaslappleika og stoðkerfisverkjum. Ég átti oft á tíðum erfitt með öndun og var með meltingartruflanir og lystarleysi,“ segir Orka sem ákvað að taka málin í sínar hendur.
„Ég þurfti að horfast í augu við vanlíðanina, taka þetta í mínar eigin hendur, standa upp og hugsa vel um sjálfa mig,“ útskýrir Orka og segir að þessum tíma hafi hún hnotið um auglýsingu frá ICEHERBS og ákveðið að prófa vörurnar.
Magnesíum og Sofðu rótt
„Ég byrjaði fyrir um það bil ári síðan að taka inn Magnesíum og Sofðu rótt frá ICEHERBS, sem ég tek inn á að kveldi. Þessi bætiefni tek ég til að upplifa náttúrulega slökun, ró og bæta eðlilegan og samfelldan svefn ásamt bættri almennri líðan. Auk Magnesíum og Sofðu rótt tek ég inn D-vítamín sem inniheldur hámarksskammt af D-vítamíni og íslenskri burnirót. Burnirótin er talin auka einbeitingu, almenna andlega líðan, líkamlegt og andlegt úthald.“
Aðspurð hversu langur tími hafi liðið þangað til hún fann á mun svefninum segir Orka: „Ég fann fyrir breytingum eftir fyrstu tvær til fjórar vikurnar. Ég hætti að vísu alveg óvart á tímabili, í um það bil þrjár vikur, og fann þá mikinn mun á mér svo ég byrjaði strax aftur að taka inn bætiefni og mun alveg pottþétt halda áfram.“
Fótaóeirð
Frá því að Orka var táningur hefur hún glímt við fótaóeirð sem gerir helst vart við sig á kvöldin eða rétt fyrir svefninn og segir frá því hvernig regluleg inntaka Magnesíum frá ICEHERBS hafi slegið á einkenni óeirðarinnar.
„Magnesíum tel ég vera nauðsynlegt fyrir heilbrigt taugakerfi, eðlilega vöðvaslökun, fótaóeirð og til þess að róa og koma jafnvægi á meltinguna,“ úrskýrir Orka.
„Bætiefnin frá ICEHERBS voru svo sannarlega skref að bættri líðan.“
Bætt þrek
Eins og fram hefur komið hreyfir Orka sig mikið. Aðspurð hvort hún taki fleiri fæðubótarefni svarar hún: „Ég stunda reglulega hreyfingu og er Astaxanthin talið geta minnkað bólgur, bætt þrek og flýtt fyrir hraðari endurheimt eftir þjálfun og þannig getur það stuðlað að auknum árangri sem í þessu tilfelli hefur hjálpað mér.“
Orka bætir við glaðbeitt: „Auk þess er ég að fara út í sólina og þá hentar það vel að vera búin að undirbúa húðina vel.“
_____
ICEHERBS er íslenskt fyrirtæki sem leggur ríka áherslu á að framleiða hrein og náttúruleg bætiefni. Lögð er gríðarlega áhersla á vörur ICEHERBS nýtist viðskiptavininum vel, að virknin skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar efnanna viðhaldi sér að fullu. Mikilvægi hreinna innihaldsefna er í hávegum höfð og að engin óþarfa fylliefni séu í vörum ICEHERBS. Íslensk framleiðsla.
Vörurnar fást í flestum apótekum, heilsuvörurverslunum og betri stórvörumörkuðum.
-
D-VÍTAMÍN ORKUBLANDAkr.2.899 -
Vetrartvennakr.4.390 -
Daglegi pakkinnkr.6.290 -
D-bombakr.6.890


