24 jan D vítamín – Þessi blanda kemur þér í gegnum veturinn brosandi
Katrín Amni Friðriksdóttir segir okkur aðeins frá því hvernig D vítamín og burnirót blandan varð til
„Ég þróaði vöruna með sjálfa mig í huga”.
“Við þekkjum öll hið klassíska slen og orkuleysi sem hellist yfir íslensku þjóðina, eins og þung mara í skammdeginu, með tilheyrandi þreytu og orkuleysi,” segir Katrín Amni Friðriksdóttir, framkvæmdarstjóri og eigandi fyrirtækisins Kavita sem framleiðir og þróar íslensku bætiefnalínuna ICEHERBS.
„Ég verð ofboðslega þreytt á veturnar og myrkrið er mér gríðarlega erfitt. Ég hef alltaf verið svona og hélt oft að það væri hreinlega eitthvað að mér á veturna. Svo kom á daginn að mig vantaði meira D-vítamín og smá orkubúst. Skorturinn hafði mikil áhrif á lífsgæði mín, það var erfitt að vakna á morgnana og myrkrið hafði áhrif á líkamsstarfsemina,” útskýrir Katrín.
Orkublandan hjálpar í mesta skammdeginu
“Orkublandan okkar, frá ICEHERBS, inniheldur 2000 einingar af D-vítamíni og hreina íslenska burnirót (Rhodiola rosea). Það er ótrúleg virkni í orkublöndunni, enda heyri ég mikið frá viðskiptavinum okkar hvað varan gerir þeim gott. Flestir finna fyrir virkni innan örfárra daga og vakna hressari á dimmum morgnum,” segir Katrín sem ákvað á sínum tíma að taka málin í sínar hendur.
„Ég þróaði vöruna með sjálfa mig í huga. Mér fannst spennandi að tvinna þessi innihaldsefni saman, enda hefur inntaka á bæði D vítamíni og burnirót reynst mér gríðarlega vel í gegnum árin,” segir Katrín Amni.
“Við þekkjum öll mikilvægi sólarvítamínsins sem D vítamín er. Svo er burnirótin einfaldlega uppáhalds jurtin mín. Hún er þekkt fyrir að auka orku og kraft, hefur mjög jákvæð áhrif á þreytu, streitu, einbeitingu og andlegt úthald.”
Orkan úr náttúrunni
Katrín hefur alltaf lagt áherslu á að sækja sér orku á náttúrlegan hátt og hefur til margra ára haft áhuga á krafti lækningajurta.
“Ég hef alltaf haft áhuga á að sækja mér auka orku á náttúrulegan hátt og er jurtaríkið ofboðslega gjöfult þegar kemur að því að bæta lífsgæði. Burnirótin er ein af þeim lækningajurtum sem ég hef notað lengi og er alltaf jafn hrifin af. Mér finnst mikilvægt að nota að staðaldri náttúrulega orkugjafa en ekki bara skammvinna orkugjafa eins og til dæmis kaffið sem er skammvinn orka og þarf stöðugt að bæta á. Burnirótin byrjar að hafa langvinn og góð áhrif innan nokkura daga en það er mikilvægt að taka inn slík bætiefni daglega, sérstaklega yfir dimmustu mánuðina, þá er orkublandan algjörlega tilvalin til þess að taka inn alla daga. “
Nauðsyn D vítamíns á Íslandi
Katrín hefur tekið eftir því að Íslendingar eru orðnir upplýstari um mikilvægi D vítamíns undanfarin ár: “Þekking Íslendinga á notkun D vítamíns hefur aukist mikið síðastliðin ár sem er mjög gott þar sem D vítamínið er eitt mikilvægasta vítamínið sem líkaminn þarfnast. Skortur á því getur valdið ýmsum heilsufarsvandamálum sérstaklega hjá okkur á Íslandi.“
„Við sem búum á norðlægum slóðum erum enn verr sett því alla jafna fáum við of lítið af sólarljósi, hvað þá í svartasta skammdeginu. Því er algert lykilatriði að taka inn D vítamín sem bætiefni til þess að tryggja nægilegt magn. Og munurinn leynir sér ekki þegar líkaminn fær loksins nóg,” bætir hún við.
“D vítamín hjálpar okkur líka að vinna kalk úr fæðunni til þess að fyrirbyggja kalkskort. Beinþynning af völdum kalkskorts er því miður frekar algeng.
Því fyrr sem við byrjum að taka inn D vítamín að staðaldri, því betra. Ég hika ekki við að gefa unglingsdóttur minni, sem æfir mikið og er í krefjandi námi þessa orkublöndu á hverjum degi, allan veturinn,“ segir Katrín Amni.
Mögnuð lækningajurt
Burnirótin er ein magnaðasta lækningajurt sem vex á Íslandi og eitt best geymda leyndarmál jurtaríkisins. Jurtin vex á norðlægum slóðum og er afar þrautseig. Þá er hún oft kölluð hið norræna gingsen en hún er þekkt fyrr einstök áhrif sín á aukna orku, einbeitingu og úthald.
“Burnirótin er ein af þeim lækningajurtum sem eru kallaðar “adabtógenískar” og hafa jákvæð áhrif á andlegt ástand, svo sem orku, þrótt og þol,” segir Katrín.
Innihaldsefni Orkublöndunnar, frá ICEHERBS, eru algjört dúndur fyrir aukna orku, snerpu og úthald. Í hverju hylki eru 2000 einingar af D vítamíni, sem er viðmiðunargildi fyrir efri mörk daglegrar meðalneyslu á D vítamíni.
Hér má kaupa burnirót: Burnirót frá ICEHERBS
ICEHERBS er íslenskt vörumerki sem leggur ríka áherslu á að framleiða hrein og náttúruleg bætiefni. Lögð er gríðarlega áhersla á vörur ICEHERBS nýtist viðskiptavininum vel, að virknin skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar efnanna viðhaldi sér að fullu. Mikilvægi hreinna innihaldsefna er í hávegum höfð og innihalda fæðubótarefnin engin óþarfa uppfylliefni. ICEHERBS er framleitt á Blönduósi.
Vörurnar fást í flestum apótekum, heilsuvörurverslunum og betri stórvörumörkuðum.
-
D-VÍTAMÍN ORKUBLANDAkr.2.399
-
Vetrartvennakr.3.990
-
D-bombakr.4.890
-
Daglegi pakkinnkr.5.390