Það tekur 21 dag að skapa nýja venju

Konur 40 plús

kr.3.399

 

Ashwagandha KSM-66, Maca, burnirót & hvönn fyrir breytingarskeið

 

ICEHERBS Konur 40 plús er kraftmikil jurtablanda fyrir konur sem vilja stilla líkamsklukkuna og halda orkunni í jafnvægi þegar líkaminn kallar á stuðning. Með náttúrulegum virkum lækningajurtum og svörtum pipar sem eykur upptöku.

 

Ashwagandha KSM-66 er rótarjurt. Ashwagandha KSM-66 hefur verið notuð í aldaraðir til að efla andlegt og líkamlegt jafnvægi. Jurtin getur dregið úr streitu og kvíða, hjálpað til við svefn og stuðlað að stöðugleika í hormónabúskap líkamans á tímum breytinga.

 

Maca rót er næringarrík jurt sem getur stutt við orku, kynhvöt og hormónajafnvægi. Maca er sérstaklega vinsæl hjá konum á breytingaskeiði, þar sem hún getur unnið gegn orkuleysi og skapsveiflum og hjálpað til við að auka vellíðan á náttúrulegan hátt.

 

Burnirót  eða Rhodiola rosea er planta sem hefur kröftuga og nátttúrulega eiginleika til þess að draga úr streitu- og þreytu einkennum. Burnirótin inniheldur virk efni sem geta dregið úr magni svokallaðra „streituhormóna“ og getur haft jákvæð áhrif á framleiðslu „hamingjuhormónsins“ serótóníns.

 

Hvönn er ein af þekktustu lækningarjurtum á Íslandi. Hvönnin hefur lengi verið notuð í hefðbundnum lækningum til að styðja við hormónabúskap kvenna, sérstaklega í tengslum við tíðahringinn og breytingaskeiðið. Hún getur hjálpað við óreglulegar blæðingar og mildað einkenni tengd breytingaskeiði (s.s. hitakóf og skapsveiflur). Hún hefur einnig slakandi og verkjastillandi áhrif og getur dregið úr túrverkjum og spennu.

Styrkur kvenna byrjar innan frá – náttúruleg blanda sem styður við þig í byrjun breytingarskeiðs.

Innihaldslýsing og notkun

Varan inniheldur 60 hylki.

 

Hvert hylki inniheldur: 

  • Ashwagandha KSM-66, 225 mg
  • Maca rót, 250 mg
  • Burnirót, 50 mg
  • Hvönn, 50 mg
  • Svartur pipar, 5 mg

 

Notkun:

Takið 2 hylki á dag með vatni.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.  Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn ná ekki til.

Umsagnir (0)

Umsagnir

Það eru engar umsagnir eins og er.

Eigðu frumkvæði að fyrstu umsögninni um “Konur 40 plús”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.