fbpx

Það tekur 21 dag að skapa nýja venju

Tilboð

ASTAXANTHIN 8 mg

Original price was: kr.3.590.Current price is: kr.3.050.

 

Íslenskt astaxanthin 8 mg með e-vítamíni

Astaxanthin er eitt öflugasta andoxunarefni sem fyrirfinnst í náttúrunni. Kröftug og náttúruleg ofurfæða sem hefur ýmis jákvæð áhrif á líkamann og er einna helst þekkt fyrir jákvæða eiginleika fyrir ónæmiskerfið, húðina, sjón, heila, þol og endurheimt vöðva.

Húð:
Astaxanthin hefur frábæra eiginleika fyrir húðina. Rannsóknir benda til þess að astaxanthin geti aukið náttúrulegar varnir húðarinnar gegn skaðlegum geislum sólarinnar (mundu samt eftir sólarvörninni). Astaxanthin getur auk þess bætt rakastig húðarinnar, mýkt og teygjanleika og dregið úr fínum hrukkum. Inntaka fæðubótarefnisins hefur reynst mörgum vel til þess að draga úr myndun sólarexems. Auk þess sem inntaka bætiefnisins getur gefið húðinni jafnari lit og viðhaldið honum lengur en annars.
Mælt er með því að byrja að taka inn astaxanthin 2-4 vikum áður en farið er í sól en einnig á meðan og í nokkrar vikur eftir að tíma hefur verið varið í sól til þess að viðhalda brúnku.

Vöðvar:
Astaxanthin hefur verið afar vinsælt bætiefni hjá íþróttafólki til þess að auka þol og flýta fyrir endurheimt eftir æfingar. Astaxanthin er talið geta aukið úthald og aukið myndum vöðva við æfingar. Þá er astaxanthin talið geta hjálpað líkamanum að laga fljótt harðsperrur og líkamleg eymsli. Það flýtir fyrir endurheimt vöðva eftir miklar æfingar og getur unnið gegn bólgum í liðum.

Íslensk framleiðsla:
Astaxanthin frá ICEHERBS er framleitt á Íslandi úr hreinum og náttúrulegum smáþörungum. Bætiefnið inniheldur e-vítamín sem viðheldur ferskleika hráefnisins og saman auka þau andoxunareiginleika hvors annars. Astaxanthin frá ICEHERBS er vegan.

Athugið breyttur styrkleiki í hylkjum. Áður innihélt varan 60 stk af 4 mg hylkum og dagskammtur var 2 hylki á dag. Nú eru nýju hylkin aðeins stærri og hvert hylki inniheldur 8 mg og er því dagskammturinn aðeins 1 hylki á dag.

Innihaldslýsing og notkun

Varan inniheldur 60 hylki.

Hvert hylki inniheldur: 

  • Astaxanthin
  • E-vítamín
  • Engin aukaefni
  • Hylkin eru úr jurtabeðmi

Notkun:
Takið 1 hylki á dag með vatni.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.  Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn ná ekki til.

Umsagnir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir eins og er.

Eigðu frumkvæði að fyrstu umsögninni um “ASTAXANTHIN 8 mg”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *