fbpx

Það tekur 21 dag að skapa nýja venju

Húðþrenna

kr.7.890

 

Fyrir uppbyggingu húðar og ljómandi húð, hár og neglur

Húðþrennan bætiefnapakkinn inniheldur:

Húð, hár & neglur
Collagen skin
Astaxanthin

Húðþrennan er frábær pakki af vörum fyrir þá sem vilja dekra við, styrkja og næra húðina innan frá.

Astaxanthin er eitt öflugasta andoxunarefni sem fyrirfinnst náttúrulega.  Astaxanthin hefur frábæra eiginleika fyrir húðina og veitir sólarvörn auk þess að viðhalda rakastigi húðarinnar, mýkt og teygjanleika og dregur úr fínum hrukkum.

Húð, hár & neglur eru öflugar þaratöflur sem samanstanda af tveimur sæþörungum Ascophyllum nodosum og Laminaria digitata. Þessi blanda er talin hafa góð og nærandi áhrif á húð, hár og neglur. Þaratöflurnar hafa hreinsandi áhrif á likamann og inniheldur blandan ríkulegt magn steinefna og trefja ásamt joði. Þaratöflurnar eru framleiddar úr íslenskum sæþörungum sem safnað er á sjálfbæran hátt á Vestfjörðum

Kollagen styrkir vefi líkamans og sér til þess að þeir haldist sterkir. Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans og er eitt af þeim efnasamböndum sem eru húð okkar mikilvægust. Inniheldur einnig sæþörunga sem hafa lengi verið þekktir sem ofurfæða hafsins ásamt C-vítamíni sem eykur upptöku kollagens í líkamanum.

Innihaldslýsing og notkun

Húðþrenna bætiefnapakkinn inniheldur:
Húð, hár & neglur
Collagen skin
C-vítamín & engifer

Notkun:
Takið 1-3 hylki á dag af hverri vöru með vatni (sjá notkunarleiðbeiningar á hverri vöru fyrir sig).

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.  Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn ná ekki til.

Umsagnir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir eins og er.

Eigðu frumkvæði að fyrstu umsögninni um “Húðþrenna”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *