fbpx
Um okkur

Vörumerkin ICEHERBS er í eigu Kavita ehf.

Fyrirtækið hefur að markmiði að nýta náttúruauðlindir sem eru tengdar við sögu og hefðir íslensku þjóðarinnar, og gera þær að neytendavænum vörum fyrir viðskiptavini okkar.  Vörur ICEHERBS  eru náttúruleg bætiefni,  sem byggja á heilnæmri nýtingu náttúruafurða, kraftinum úr íslenskri náttúru og með stoð í rannsóknir á afurðum náttúrunnar.

Vörur Kavita höfða einkum til þess vaxandi hóps fólks sem hugsar á fyrirbyggjandi hátt um heilsusamlegt liferni.

iceherbs-vefur-2

Teymið

KATRÍN AMNI FRIÐRIKSDÓTTIR

Framkvæmdastjóri

ÁGÚST SINDRI KARLSSON

Fjármálastjóri

Ása Björg Tryggvadóttir

Aðstoðar framkvæmdarstjóri

Berglind Gerða Sigurðardóttir

Söludeild

Sunna Sveinsdóttir

Söludeild

GUÐRÚN LE SAGE DE-FONTENAY

Grafsíkur hönnuður

SÓLEY ÞRÁINSDÓTTIR

Verkefnisstjóri

Sagan

ICEHERBS vörumerkið er í eigu Kavita ehf.

Sögu ICEHERBS má rekja til ársins 1993 þegar félagið Íslensk fjallagrös hf. var stofnað af sveitarfélögum á Norðurlandi.  Hugmyndin að stofnun félagins var að nýta íslenskt hráefni, fjallagrös, sem á þeim tíma höfðu verið flutt úr landi óunnin.  Félagið tók fljótlega að nota vörumerkið ICEHERBS fyrir vörur sem félagið framleiddi.

 

Hálsmixtúrur undir vörumerkinu ICEHERBS hafa verið til sölu frá árinu 1995.  Árið 2012 hófst vöruþróun og framleiðsla á hreinum bætiefnum í hylkjum, en mikill vöxtur er í  þeim vöruflokki á heimsvísu.

 

Árið 2016 var vörumerkið ICEHERBS flutt í nýtt félag Kavita ehf.

 

Félagið hóf síðan árið 2017 að selja húðvörur undir vörumerkinu Iceherbs Skin með varasölvum sem eru fyrstu vörurnar í vöruþróun á húðvörum sem innihalda fjallagrös.

 

Eigendur Kavita ehf. eru Katrín Amni Friðriksdóttir og Ágúst Sindri Karlsson.

 

Katrín Amni er hagfræðingur að mennt en hefur í um 2 áratugi haft mikinn áhuga á heilsusamlegum lífstíl og hreinum vörum. Katrín hefur lengi reynt að nota náttúrulegar og hreinar vörur eins mikið og hún getur í sínu daglega lífi. Katrín tók við sem innkaupa- og markaðsstjóri Heilsuhússins sem er í eigu Lyfju árið 2013, þar jókst áhugi hennar til muna á gagnsæi heilsuvara og hve mikilvægt væri að gæði og hreinleiki heilsuvara væru sett framar öllu þegar að vörur eru valdar inn í hillur heilsuvöruverslana. Katrín sá alfarið um vöruúrval verslanakeðjunnar í um 3 ár.

 

Árið 2016 ákvað Katrín að nýta sér þekkingu sína á sviði markaðssetningar og á heilsuvörum og keypti eignarhlut í Náttúrusmiðjunni ehf.   Samhliða tók hún við framkvæmdastjórn Kavita.

 

Ágúst Sindri er með bakgrunn úr lögfræði og viðskiptum.  Síðari ár hefur hann lagt áherslu á nýsköpun á sviði heilsu og umhverfismála.   Það er hans sýn að skynsamleg notkun á heilsuvörum í bland við hreyfingu stuðli að betri heilsu og bættum lífsgæðum.  Hans skoðun er sú að  mannkynið hefur notað náttúruvörur til lækningar og heilsueflingar um aldir og engin ástæða er til að ætla annað en að skynsamleg nýting á heilsuvörum geri sama gagn í dag og fyrr á öldum.  Það skiptir líka máli að ICEHERBS vörumerkið stendur fyrir hreinum vörum og sjálfbæra nýtingu á afurðum.

 

Í sögu ICEHERBS liggur mikið hugvit, vinna og fjármagn. Styrkleikar fyrirtækisins felast einkum í afurðum íslenskrar náttúru sem er mjög gjöful á virkar lækningajurtir, og  hugmyndafræðinni um kraft náttúrulegra jurta og lækningamætti þeirra til þess að viðhalda heilbrigðum lífstíl.